Verða fleiri KA menn í Valsheimilinu á morgun?
Egill Bjarni Friðjónsson

Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki hefst á morgun þegar deildarmeistarar Vals taka á móti KA sem enduðu í 5.sæti Olís-deildarinnar.

Flautað verður til leiks klukkan 18:30 annan í páskum en á þriðjudaginn hefst hin viðureignin í undanúrslitunum þegar FH og Haukar mætast í alvöru Hafnarfjarðarslag.

Samkvæmt því sem Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals skrifaði á stuðningsmanna síðu Vals á Facebook "Fjósið" hafa fleiri stuðningsmenn KA keypt sér miða á leikinn á morgun heldur en Valsarar.

,,KA er allavega búið að kaupa fleiri miða á leikinn en Valsmenn, eins og staðan er núna. Við viljum ekki lenda undir í baráttunni. Hvorki innan vallar, né utan," skrifaði Björgvin Páll meðal annars þegar hann hvatti Valsmenn til að fjölmenna í N1-höllina á morgun.

,,Vonandi eru páskarnir að fara vel í Valsmenn en ég vil bara minna á STÓRLEIKINN okkar gegn KA í undanúrslitum á mánudagskvöldið! Ef að sagan segir okkur eitthvað þá verður þetta svakalegt", sagði Björgvin Páll og sagði í kjölfarið frá því að hann hafi í gamni sínu slegið inn Valur - KA handbolti inn á YouTube og "sæmilega veislan".

Bæði Valur og KA fóru í gegnum 8-liða úrslitin með því að vinna sín einvígi 2-0. Valur sló út HK á meðan KA sló út ÍBV.

Hitað var upp fyrir einvígið í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top