
Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti danski leikmaður Aftureldingar, Oscar Lykke yfirgefið liðið í sumar þrátt fyrir að hafa gert þriggja ára samning við félagið fyrir tímabilið. Hinn tvítugi, Oscar Lykke gekk í raðir Aftureldingar fyrir tímabilið frá Ringsted í Danmörku. Lykke 23 leiki með Aftureldingu á Íslandsmótinu og skoraði í þeim leikjum 94 mörk en hann var fjórði markahæsti leikmaður liðsins í vetur en Afturelding féll út á dögunum í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins eftir tap gegn Haukum í eina oddaleik 8-liða úrslitanna. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Oscar Lykke unnið að því frá því um áramótin að yfirgefa Aftureldingu í sumar þrátt fyrir að samningur hans rennur ekki út fyrr en árið 2028. Það verður fróðlegt að sjá hvað úr verður, hvort Mosfellingar nái að sannfæra Danann um að vera áfram í herbúðum liðsins eða hvort hann fái ósk sína uppfyllta og yfirgefi Mosfellsbæinn eftir einungis eins árs veru í Aftureldingu. Rætt var um tap Aftureldingar gegn Haukum í oddaleik 8-liða úrslitanna í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.