

Georgíski landsliðsmaðurinn, Giorgi Dikhaminjia meiddist í landsleik með Georgíu í lok mars mánaðar en Handkastið greindi frá því í kjölfarið að tímabili hans með KA væri lokið. Handkastið hafði samband við Giorgi á dögunum sem er staddur þessa dagana heima í Georgíu. Í samtalinu staðfesti Georgíumaðurinn að tímabilinu hjá honum væri að öllum líkindum lokið. ,,Ég kem aftur til Akureyrar í vikunni og held áfram með endurhæfinguna þar. Það lítur út fyrir að ég sé búinn að spila minn síðasta leik á þessu tímabili. En ef allt gengur vel þá byrja ég næsta tímabil 100%," sagði Giorgi sem staðfesti á sama tíma að hann yrði áfram í herbúðum KA á næsta tímabili enda hafi hann gert tveggja ára samning við KA er hann gekk til liðs við félagið síðasta sumar. Giorgi Dikhaminjia gekk í raðir KA frá Póllandi fyrir tímabilið og skoraði 109 mörk fyrir liðið í Olís-deildinni en KA endaði í 5.sæti Olís-deildarinnar. KA sló út ÍBV 2-0 í 8-liða úrslitum og mætir Val í undanúrslitum. Einvígi Vals og KA hefst í kvöld klukkan 18:30 en einvígi FH og Hauka hefst annað kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.