Oddaleikur Stjörnunnar og Fjölnis í undanúrslitum í umspilinu um laust sæti í Olís-deild karla á næstu leiktíð fer fram í Heklu-höllinni í dag klukkan 16:30. Fjölnir gerði sér lítið fyrir og vann fyrsta leik liðanna í Heklu-höllinni 24-23 í spennuþrungnum leik. Stjarnan mætti því í Egilshöllina í síðasta leik með bakið upp við vegg en vann sannfærandi sex marka sigur 32-26. Í þeim leik vantaði Þorleifur Rafn Aðalsteinsson í lið Fjölnis en hann er snúinn aftur í leikmannahóp Fjölnis fyrir leikinn í dag. Þorleifur skoraði eitt mark í fyrsta leik liðanna í Heklu-höllinni. Sigurvegarinn úr einvíginu mætir Herði í úrslitaeinvíginu en Hörður vann óvænt Gróttu í sínu einvígi 2-0.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.