
Handkastið fékk fregnir af því að Hildur Guðjónsdóttir, 24 ára skytta í liði Víkings væri mögulega að fara að hætta handboltaiðkun. Við ákváðum að heyra í henni og fá að vita meira hvað kæmi til. "Já hvort ég sé hætt eða bara í langri pásu verður bara að koma í ljós en ég hef verið glíma við erfið meiðsl í öxl núna í nokkur ár og fannst því fínt að segja þetta gott í bili allavega núna" sagði Hildur. Handkastið vonar að Hildur fái bót meina sinna í öxlinni og snúi aftur á völlinn frekar fyrr heldur en seinna.
Hildur er uppalin í FH og hefur alla tíð spilað með uppeldisfélaginu en síðasta sumar söðlaði hún hinsvegar um og gekk í raðir Víkings. Spilaði hún 17 leiki í vetur með liðinu og skoraði 61 mörk. Leikmaður með gott auga fyrir spili og góður skotmaður.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.