

Afturelding tapaði gegn Haukum í oddaleik á fimmtudaginn og luku þar með þátttöku í Olís deildinni þetta árið eftir 2-1 tap í einvíginu. Mosfellingar byrjuðu tímabilið af miklum krafti og voru til að mynda á toppi deildarinnar stóran hluta fyrir áramót en fataðist svo flugið í deildinni eftir áramót og fengu einungis þrjú stig og duttu út í bikar. Í síðasta þætti Handkastsins sköpuðust umræður um gengi Aftureldingar í vetur og vildi Styrmir meina að Afturelding væri á pari fyrir honum eins og hann sá þá fyrir tímabilið þrátt fyrir góða byrjun meðan Arnar Daði teldi að tímabilið hlyti að vera vonbrigði eftir þessa frábæru byrjun þeirra á tímabilinu. Einar Ingi Hrafnsson sem þekkir til í Mosfellsbænum eflaust betur en nokkur annar sagði það klárlega vera áhyggjuefni hvernig spilamennskan eftir áramót var hjá liðinu. ,,Liðin var að ná í stig fyrir áramót sem voru yfir væntingum en áhyggjuefnið er það sem gerist eftir áramót." Liðið spilaði töluvert verr eftir áramótin og sagði Einar Ingi að leikmenn liðsins og fólkið í kringum liðið væri virkilega ósátt með hvernig tímabilið þróaðist eftir áramót. ,,Það er alltaf hægt að afsaka með meiðslum en það eru leikmenn að detta út í flestum öðrum liðum í kringum þá svo núna þarf liðið bara að setjast niður og greina þetta, hvað er það sem gerist og hvernig gerist það ekki í september?" Það er mjög flókið að sætta sig við tímabilið og að niðurstaðan sé 6.sætið því budget-lega er sjötta sætið í lagi en það eru mikil vonbrigði og ég held það séu mikil vonbrigði hjá leikmönnum og þjálfarateyminu að hafa endað tímabilið á þennan hátt sagði Einar Ingi

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.