
Ungverski markvörðurinn, Martin Nagy sem gekk í raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Helsingborg fyrir tímabilið verður ekki áfram í herbúðum félagsins. Þetta staðfesti sænska félagið á samfélagsmiðla síðu sinni á dögunum. Hinn 27 ára Ungverji Martin Nagy gekk í raðir Helsingborg frá Pick Szeged en Martin Nagy lék með Val tímabilið 2020-2021 og lék með liðinu í Olís-deildinni og varð Íslandsmeistari með félaginu. Það tímabil myndaði hann markvarðarteymi með Einari Baldvini Baldvinssyni. Í kjölfarið gekk hann síðan til liðs við Íslendingalið Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar. Þá lék hann einnig um tíma undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar hjá Fredericia í Danmörku. Helsingborg enduðu í 12.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig og eru því í umspili um sæti í deildinni gegn Varberg en staðan er jöfn í einvíginu 1-1 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja veru sína í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.