Selfyssingurinn Haukur Þrastarson átti virkilega flottan leik í naumu tapi Rhein-Neckar Löwen gegn Erlangen í Þýsku Bundesligunni í dag. Erlangen vann leikinn 29-27 eftir að hafa verið undir 10-13 í hálfleik. Haukur var markahæstur og með flestar stoðsendingar hjá Löwen. Skoraði 8 mörk og átti 9 stoðsendingar. Hann kom því að 17 mörkum Löwen af 27 mörkum sem gerir rúm 63%. Rhein-Neckar Löwen situr í áttunda sæti með 31 stig en Erlangen er í þréttanda sæti með 19 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.