Elín Rósa, Díana Dögg og Andrea Jacobsen deildarmeistarar í Þýskalandi
Frank Hoermann / SVEN SIMON AFP

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe sem landsliðskonurnar Elín Rósa Magnúsdóttir, Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen leika með tryggði sér deildarmeistaratitilinn í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Ljóst var fyrir leik gegn Borussia Dortmund í dag að Blomberg-Lippe þyrfti sigur til þess að enda í efsta sæti deildarinnar. Liðið sigraði leikinn 33:31 í algjörum toppslag og fagna þær því deildarmeistaratitli í dag.

Eyjamærin Díana Dögg Magnúsdóttir innsiglaði sigur liðsins þegar hún skoraði lokamark leiksins. Díana Dögg skoraði sex mörk í leiknum í dag og Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar. Elín Rósa er uppalin í Fylki en spilaði lengi vel með Val áður en hún fór út til Þýskalands. Andrea Jacobsen sem alin er upp í Fjölni komst ekki á blað en átti 3 stoðsendingar ásamt því að standa pliktina vel í vörn liðsins.

Úrslitakeppnin í þýska kvennaboltanum er núna handan við hornið þar sem fjögur efstu lið deildarinnar fara áfram. Vinna þarf tvo leiki í undanúrslitum og í úrslitum til að standa uppi sem Þýskalandsmeistari. 

Handkastið óskar Elín Rósu, Díönu Dögg og Andreu innilega til hamingju með deildarmeistaratitilinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top