
Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn hefjast í kvöld klukkan 18:30 þegar deildarmeistararnir í Val taka á móti KA í Valsheimilinu. Leikurinn verður sýndur í beinni í Handboltapassanum. Þrátt fyrir veðurviðvaranir á landinu í dag eru KA menn komnir í höfuðborgina en liðið lagði snemma af stað frá Akureyri í morgun. Var liðið fast á Kjalarnesi í um 40 mínútur þar sem veginum var lokað um tíma en liðið er hinsvegar komið í bæinn og er statt í Mosfellsbæ núna þar sem liðið tekur létta æfingu fyrir átökin í kvöld. Veðbankar spá sigri Vals í kvöld en stuðullinn á sigur Vals á veðmálasíðunni, Coolbet er 1.53 en stuðullinn á KA sigur er 3.40. Liðin mættust tvívegis í Olís-deildinni í vetur þar sem bæði lið unnu sitthvorar fimm marka sigur. Valur vann á heimavelli í febrúar 36-31 en KA vann sinn heimaleik um miðjan október 33-28. Það verða engir Valsarar á flautunni í kvöld heldur, Framarnir Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson. Kristján Halldórsson verður eftirlitsmaður.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.