Markmiðið skýrt – Tryggja sér sæti á EM
SEBASTIEN BOZON / AFP

Færeyska kvenna landsliðið tekur á móti því íslenska á miðvikudagskvöldið í Færeyjum í næst síðustu umferð undankeppni Evrópumótsins. Færeyska landsliðið er í dauðafæri að tryggja sér inn á annað Evrópumótið í röð.

Færeyjar unnu það íslenska í Úlfarsárdalnum fyrir áramót. En liðið mætti Portúgal í síðasta landsliðsglugga þar sem færeyska landsliðið vann heimaleikinn en tapaði útileiknum.

Súna Krossteig Hansen, einn af lykilmönnum færeyska landsliðsins segir að markmið liðsins sé skýrt, að tryggja sér sæti á EM.

,,Vörnin var góð og við fengum góða markvörslu en sóknarleikurinn var ekki nógu góður og við vorum ekki ánægðar með frammistöðuna gegn Portúgal,“ sagði Súna í viðtali við Portal.fo en Súna leikur með Skanderborg í dönsku úrvalsdeildinni.

,,Við erum mjög ákveðnar, vel undirbúnar og ætlum að gera okkar allra besta til að tryggja okkur sæti á EM síðar á árinu.“

Leikurinn á miðvikudaginn hefst klukkan 18:00 og með sigri gæti færeyska landsliðið verið komið langleiðina á EM þrátt fyrir að eiga eftir að mæta Svartfjallalandi í lokaumferðinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top