Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

FH - Haukar (Þriðjudagur 19:30) / Sigurvegari: FH

Viðureignin sem allir hafa beðið eftir. Nágrannaslagur af bestu gerð og vonandi verður þessi leikur meira spennandi en leikur Vals og KA í gær. Ég hef verið að bíða eftir því í allan vetur að FH sýni óstöðuleika hjá þessu unga liði en þeir eru bara of góðir til þess. Ég held þeir muni eiga fyrsta höggið á morgun og vera dyggilega studdir af stuðningsmönnum sínum í troðfullum Kaplakrika. Engar áhyggjur þó Haukafólk, við erum að fara að fá þetta einvígi í oddaleik svo þið munið vinna leiki líka.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top