Danirnir Mikkel Jensen og Oliver Christensen ganga til liðs við Þór og munu spila með liðinu í Olís deildinni á næstu leiktíð. Mikkel er tvítug hægri skytta, 192 cm á hæð og kemur frá Silkeborg en hefur leikið með SHEA sem er akademía Skanderborg liðsins og spilaði hann nýlega sínar fyrstu mínutur með aðalliði Skanderborg. Oliver er einnig tvítugur og spilar í vinstra horninu. Hann var liðsfélagi Mikkel hjá Skanderborg, en hann er uppalinn þar. Það verður spennandi að fylgjast með þessum ungu dönum í Olís deildinni með Þór næsta vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.