Sävehof er komið í 2-0 forystu í einvígi sínu gegn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni en annar leikur liðanna fór fram í Partille Arena í kvöld. Staðan verður að teljast óvænt miðað við það að Hammarby endaði deildarkeppnina í þriðja sæti á meðan Sävehof endaði í sjötta sætinu. Rétt eins og í fyrsta leiknum var leikurinn í kvöld gríðarlega jafn og spennandi og á endanum náðu heimamenn að vinna naumlega með tveimur mörkum, 28-26. Birgir Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk, öll á vítalínunni, gaf eina stoðsendingu og fékk að auki eina brottvísun. Sävehof geta tryggt sér sæti í undanúrslitin í næsta leik liðanna sem fram fer í Stokkhólmi næstkomandi mánudagskvöld. Einn annar leikur fór fram í kvöld en þá jafnaði Alingsås metin gegn Skövde með nokkuð öruggum sigri á heimavelli, 36-26. Næsti leikur liðanna fer fram í Skövde á sunnudaginn. Úrslit kvöldsins: Sävehof 28-26 Hammarby Alingsås 36-26 Skövde

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.