

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Stjarnan - Hörður (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: Stjarnan Stjarnan tekur á móti Herði í fyrsta leik liðanna um laust sæti í Olís deild karla að ári. Stjarnan komst með herkjum í gegnum einvígið gegn Fjölni meðan Hörður kom öllum á óvart og unnu Gróttu 2-0. Stjarnan þarf að gera betur en gegn Fjölni ef þeir ætla eiga séns í Hörð sem koma fullir sjálfstrausti inn í þetta einvígi. Þetta verður naglbítur, Stjarnan mun hafa þetta á endanum eftir framlengdan leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.