Búumst við hörkueinvígi – Hörður verið vaxandi og með flott lið
Sævar Jónasson

Stjarnan og Hörður mætast í kvöld í fyrsta leik úrslitaeinvígi umspils um Olís sæti. Leikið verður í Heklu höllinni í Garðabæ og hefst hann leikurinn klukkan 18:30.

Sigra þarf þrjá leiki til að tryggja sér Olís deildar sætið.

Sverrir Eyjólfsson þjálfari Stjörnunnar hefur eftirfarandi að segja um einvígið.

"Við Stjörnumenn erum mjög spenntir fyrir komandi einvígi við Hörð. Hörður hefur verið vaxandi í vetur og eru með flott lið. Við þurfum að eiga góða frammistöðu og ná upp góðri stemmingu í þessu einvígi. Við búumst við hörkueinvígi og skemmtilegum handbolta. Svo er alltaf gaman að fara vestur og okkur hlakkar mikið til."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top