Jón Þórarinn Þorsteinsson átti frábæran leik í marki FH í gærkvöldi þegar liðið vann Hauka 27-21 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. FH leiðir því í einvíginu 1-0 en liðin mætast aftur á Ásvöllum á föstudagskvöldið klukkan 19:00. Jón Þórarinn var með 50% markvörslu í marki FH áður en Haukar skoruðu sárabótarmark undir lok leiks og endaði Jón Þórarinn því með 48% markvörslu í leiknum og var megin ástæðan fyrir því að FH fór með sigur af hólmi. Hann byrjaði hinsvegar leikinn á bekknum en kom inná um miðbik fyrri hálfleiks. ,,Ég er með frábæran markmann með mér og Danni er geðveikur markmaður og þetta er bara samkeppni á milli okkar. Hann byrjaði í dag og við erum báðir tilbúnir fyrir næsta leik. Ég er með geðveika þrista og geðveika bakverði og geggjaða hornamenn fyrir framan mig. Það er frábært að hafa þessa vörn fyrir framan sig." Hvernig sér hann þetta einvígi þróast - gerir hann ráð fyrir því að þetta einvígi fari í fleiri en þrjá leiki? ,,Það kemur í ljós, eina sem ég veit er að við verðum að vera tilbúnir í næsta leik, það er eina sem ég veit." Eftir rúmlega mánuð hittist íslenska landsliðið í Egyptalandi og leikur þar tvo æfingaleiki gegn Egyptum. Margir hafa kallað eftir því að Jón Þórarinn fari að fá tækifæri með íslenska landsliðinu en hann hefur oft á tíðum átt stórbrotnar frammistöður með FH í vetur. Er hann með einhver skilaboð til Snorra Steins? ,,Ég ætla ekki að pæla neitt í því núna, þetta er það eina sem ég er að pæla í núna. Ef kallið kemur þá kemur það bara. Það er ekkert stress og ég er ekkert að pæla í því," sagði Jón Þórarinn sem segist stefna út í atvinnumennsku í framtíðinni. ,,Það er alltaf planið að fara út en maður kemst ekki út nema vera góður. Þetta hefur gengið ágætlega hjá mér á þessu tímabili og ég verð að halda því bara áfram." Selfyssingurinn gekk í raðir FH fyrir tímabilið og leynir því ekki að leikir FH og Hauka í vetur hafi verið skemmtilegustu leikir sem hann hefur spilað á ferlinum. ,,Þetta er svakaleg skemmtun, ég var nú ekki búinn að kynna mér FH-Haukar nægilega vel áður en ég mætti en þetta eru skemmtilegustu leikirnir sem ég hef spilað síðan ég byrjaði í handbolta."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.