Susanne Denise Pettersen gæti verið að förum frá nýliðum KA/Þórs en tveggja ára samningur hennar við félagið rennur út í sumar. Susanne gekk í raðir KA/Þórs fyrir síðasta tímabil og var lykilmaður í liðinu þegar liðið vann Grill66-deildina á síðustu leiktíð en hún var markahæsti leikmaður liðsins bæði í fyrra og í Olís-deildinni í ár þar sem KA/Þór endaði í 6.sæti deildarinnar og fór alla leið í undanúrslit Powerade-bikarsins. Susanne sagði í samtali við Handkastið að framtíðin hennar væri óljós um þessar mundir. Hún væri opin fyrir því að vera áfram á Íslandi en væri þó einnig að skoða möguleika erlendis. Susanne hefur verið viðloðandi norska strandhandboltalandsliðsins en hún gekk í raðir KA/Þórs frá norska neðri deildarliðinu Pors en hún var næst markahæsti leikmaður norsku 2.deildarinnar tímabilið áður en hún fór norður til KA/Þórs.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.