Stórleikur fer fram á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og FH mætast í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Hefst leikurinn klukkan 19:00 og ríkir mikil eftirvænting fyrir leiknum en FH leiðir í einvíginu 1-0 eftir sigur í fyrsta leik liðanna. Allir leikirnir í undanúrslitunum hingað til hafa verið sýndir í Handboltapassanum en í kvöld verður breyting á þar sem leikur Hauka og FH verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Hefst útsendingin klukkan 18:45. HSÍ sem er með sýningarréttinn á Olís-deildum karla og kvenna hefur látið lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum á meðan úrslitakeppnin hefur verið í gangi og hefur Handkastið orðið var við mikla óánægju með upplýsingaflæði HSÍ. Þá voru félögin sem leika í undanúrslitunum allt annað en sátt með þá ákvörðun HSÍ að sýna fyrsta leik Vals og KA í undanúrslitaeinvíginu í gegnum Spiideo útsendingu og sjálfboðaliði á vegum Vals lýsti leiknum. Átti það sama að vera upp á teningnum í fyrsta leik FH og Hauka sem leikinn var deginum eftir en því var breytt samdægurs og var þeim leik lýst af Ingvari Erni Ákasyni og Vigni Stefánssyni. Rætt var um þá ákvörðun HSÍ í nýjasta þætti Handkastsins. Handkastið lét því markaðsdeild sýna útbúa auglýsingu sem tók ekki nema 15 sekúndur þar sem tekið er fram hvenær leikur Hauka og FH fer fram í kvöld og að leikurinn verði sýndur í opinni dagskrá.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.