Óvissa ríkir um þátttöku lykilmanna Hauka í Hafnarfjarðarslagnum
J.L.Long

Stórleikur fer fram á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og FH mætast í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Hefst leikurinn klukkan 19:00 og ríkir mikil eftirvænting fyrir leiknum en FH leiðir í einvíginu 1-0 eftir sigur í fyrsta leik liðanna.

Óvissa ríkir í herbúðum Hauka hvort lykilmennirnir, Grétar Ari Guðjónsson markvörður og Darri Aronsson geti leikið í kvöld en báðir meiddust þeir í fyrsta leik liðanna. Gunnar Magnússon þjálfari Hauka sagði í samtali við Handkastið í morgun að allt yrði gert svo þeir gætu tekið þátt í leiknum.

,,Það er ekkert launungarmál að þeir eru tæpir fyrir leikinn í kvöld og það mun sennilega ekki skýrast fyrr en í upphitun hvort þeir geti spilað í leiknum í kvöld. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur í kvöld og það er alveg ljóst að allir vilja spila en það verður að koma í ljós þegar nær dregur leiknum hvort þessir leikmenn geti spilað í kvöld," sagði Gunnar í samtali við Handkastið sem ítrekaði mikilvægi leiksins.

,,Við erum með bakið upp við vegg og þurfum á öllum okkar leikmönnum að halda í leiknum en við þurfum hinsvegar að meta stöðu þeirra og vera skynsamir."

Grétar Ari sneri sig á ökkla í seinni hálfleik í leiknum á mánudaginn og þurfti að fara af velli á 45. mínútu leiksins en þá hafði hann verið með 40% markvörslu. Aron Rafn Eðvarðsson kom inná og fann sig enganveginn og þurfti Gunnar að bregða á það ráð að setja Grétar Ara aftur inná. Það tókst ekki betur en svo að Grétar fór stuttu síðar aftur útaf vegna verkja.

Darri Aronsson sem hefur glímt við langvarandi meiðsli undanfarin ár fékk slink á hnéð á svipuðum tíma og Grétari Ari meiddist og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Hann hafði verið lykilmaður í varnarleik Hauka í leiknum sem leiddu í leiknum þegar meiðslin báru að.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top