Sjáðu sóðaskapinn hjá Færeyingum eftir sigurinn á Íslandi
Færeyska handknattleikssambandið

Færeyska kvennalandsliðið tryggði sér sæti á Evrópumótinu sem fram fer síðar á þessu ári með sannfærandi sigri á íslenska landsliðinu á miðvikudaginn.

Færeyjar unnu leikinn með fimm mörkum 35-30 og eftir tap Portúgals gegn Svartfjallalandi á fimmtudagskvöldið varð það ljóst að sigur Færeyja gegn Íslandi á miðvikudaginn tryggði liðinu inn á Evrópumótið.

Evrópumótið í ár fer fram í fimm löndum, Tékklandi, Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu og Tyrklandi. Það skýrist á sunnudaginn hvort íslenska landsliðið vinnur sér inn sæti á Evrópumótinu en liðið mætir Portúgal í úrslitaleik um laust sæti á mótinu. Sá leikur hefst klukkan 16:00 og fer fram á Ásvöllum.

Það sem vakti hinsvegar athygli hinnar Edith Johannesen var sóðaskapurinn sem færeysku stuðningsmennirnir skyldu eftir sig í stúkunni eftir leik en þéttsetið var í þjóðarhöllinni við Tjarnir í leiknum á miðvikudaginn.

,,Ó, hvað það var gott að konurnar unnu í gær. Frábærar konur. Færeysku stuðningsmennirnir voru frábærir í að styðja konurnar, en við klikkum stórlega þegar kemur að því að taka til eftir okkur sjálf. Þetta verðum við að gera betur í framtíðinni," skrifaði Færeyingurinn, Edith Johannesen á Facebook síðu sína og hefur fengið miklar undirtektir þar sem Færeyingar virðast vera sammála.

Það var þó einn sem velti fyrir sér tilgangi starfsmanna við þjóðarhöllina við Tjarnir en þeim aðila var bent á að foreldrar iðkenda í handbolta í Færeyjum hafi þrifið stúkuna eftir leik.

Edit birti eftirfarandi mynd með færslu sinni:

Sóðaskapurinn var mikill.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top