Björg­vins Halldórs­sonar minnst fyrir Hafnarfjarðarslaginn í kvöld
J.L.Long

Einnar mínútu þögn verður fyrir Hafnar­fjarðarslag Hauka og FH í undanúrslitum Íslandsmótsins sem fram fer í kvöld klukkan 19:00 til minningar um Hafnfirðinginn, Björg­vin Halldórs­son sem lést í gær á heimili sínu 75 ára að aldri.

Björgvin Halldórsson fæddist í Hafnarfirði og varð fyrstur tónlistarmanna til að fá sérstaka stjörnu sér til heiðurs í stéttina fyrir framan Bæjarbíó í Hafnarfirði. Björgvin átti einstakan tónlistarferil og setti mark sitt á tónlistarsögu Íslendinga.

Það er Vísir.is sem greinir frá því að einnar mínútu þögn verður haldin fyrir leikinn. Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans en útsendingin hefst klukkan 18.45.

Um er að ræða annan leik Hauka og FH í undanúrslitum Íslandsmótsins en FH leiðir í einvíginu 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitarimmunni.

,,Það er við hæfi að Hafnfirðingsins Björgvins Halldórssonar sé minnst þegar Hafnarfjarðarliðin tvö mætast í kvöld," segir í frétt Vísi og tökum við í Handkastinu undir þau orð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top