Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - KA (Mánudagur 19:00) / Sigurvegari: Valur Þriðji leikur þessara liða í þessari seríu og því miður verður þetta sá síðasti. KA sýndi góðan baráttuvilja í síðari hálfleik í síðasta leik en því miður var það ekki nóg. Það hefur sýnt sig í einvíginu að hópur Valsmanna er dýpri og sterkari en KA. Morten Linder meiddist í síðasta leik og ég reikna ekki með honum í þessum leik sem veikir hægri væng KA ennþá meira. Valsmenn klára þennan leik örugglega og tryggja sér farmiðann í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.