

HSÍ hefur boðið til blaðamannafundar klukkan 14:00 í dag undir yfirskriftinni: Framtíðarsýn A landsliðs karla. Gera má fastlega ráð fyrir því að á fundinum verði undirritaður nýr samningur við Snorra Stein Guðjónsson landsliðþjálfara Ísland og þá verður líklega tilkynnt að Arnór Atlason aðstoðarþjálfari hans verði áfram í þjálfarateyminu. Þeir hafa verið landsliðsþjálfarar frá 2023 en núverandi samningur þeirra rennur út 1. júní. Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Egyptum í Kaíró í Egyptalandi 13. og 15. maí næstkomandi en íslenska landsliðið hefur tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Þýskalandi í janúar á næsta ári eftir frábæran árangur á Evrópumótinu í janúar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.