Ekki til sú afsökun að mæta ekki á Ásvelli næstkomandi föstudag
Egill Bjarni Friðjónsson

Eftir sigur FH gegn Haukum í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins er ljóst að FH getur tryggt sér í úrslitaeinvígið á Ásvöllum næstkomandi föstudag þegar liðin mætast í fjórða sinn. FH leiðir í einvíginu 2-1 eftir sigurinn í kvöld.

Sigursteinn Arndal var létt eftir sigurinn í viðtali við Ingvar Örn Ákason í Sjónvarpi Símans.

,,Mér líður mjög vel en ég ætla ekki að neita því að þetta var ofboðslega erfitt en ég er mjög stoltur af liðinu okkar að hafa kafað svona djúpt og standa þetta mikið saman. Ég er mjög ánægður.”

Hvenær varð hann rólegur og vissi að sigurinn væri í höfn?

,,Ætli það hafi ekki verið þegar það voru svona 30 sekúndur eftir. Manni líður aldrei fullkomlega rólega í þessu. Þú mátt ekki stoppa í eina sekúndu þá er þér refsað.  Ég er ánægður með fókusinn sem við sýndum."

Framundan er leikur á föstudaginn á Ásvöllum. FH komst yfir í einvíginu 1-0 en tapaði gegn Haukum í leik tvö.

,,Nú reynir virkilega á okkur, við erum búnir að komast áður yfir í þessu einvígi og núna þurfum við að sýna að við höfum lært af því og þurfum að skila sigri á föstudaginn. Ég vil nýta tækifærið og hvetja alla FH-inga til að mæta. Ég veit ekki hvort það sé til sú afsökun í heiminum að mæta ekki á Ásvelli næstkomandi föstudag.”

Leikur Hauka og FH fer fram á Ásvöllum næstkomandi föstudag klukkan 19:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top