Jón Halldórsson, formaður Handknattleikssambands Íslands, segir áhuga danska handknattleikssambandsins á Arnóri Atlasyni ekki hafa haft áhrif á samningaviðræður HSÍ við landsliðsþjálfarana, sem voru kynntar í fyrradag. Þetta kom fram í viðtali við Jón í kjölfar blaðamannafundarins, þar sem hann var spurður að því hvort áhugi erlendis frá hafi á nokkurn hátt flækt eða tafið ferlið við að framlengja samninga bæði hans og Snorra Steins Guðjónssonar. ,,Það er nokkuð ljóst að Arnóri var sýndur áhugi og ekki bara Arnóri þá fékk Snorri Steinn töluvert af fyrirspurnum. Það er ánægjuefni fyrir okkur að ná að halda þeim hjá okkur. Eins og við höfum sagt frá upphafi þá hefur verið mikill vilji hjá sambandinu og þeim tveimur að ná samkomulagi um áframhaldandi samstarf. Þó svo að þessi áhugi hafi verið til staðar frá fleiri en einu liði út í heimi þá vorum við alltaf með skýra sýn og vissum í hvaða átt við stefndum. Þetta var í raun bara fínpússering á samningi svo við værum að gera jafn langan samning eins góðan og hægt er," sagði Jón Halldórsson formaður HSÍ á blaðamannafundinum sem HSÍ hélt. ÞAÐ ER Í RAUNINNI VEGFERÐIN SEM VIÐ TRÚUM Á ,,Það kom upp fyrir tveimur vikum síðan að hann væri orðaður við það landslið en þá vorum við komnir inn í samningaviðræður og það var alltaf heill hugur hjá þeim aðilum sem voru við samningaborðið að halda því áfram. Það var ekkert sem ýtti undir það að samningaviðræðurnar tækju lengri tíma að semja. Það voru allir með heilan hug við þessar samningaviðræður." ,,Við getum líka sagt það á móti að það er gott og eðlilegt að við sjáum að þjálfarateyminu okkar er sýndur áhugi og ég tala nú ekki um frá svona stórliði eins og Danmörku. Það undirstrikar hvað við erum með hæfileikaríkt teymi hjá okkur," sagði Jón í viðtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.