Sjáðu rauða spjaldið á Ólaf Ægi sem var lykilmóment í leiknum
J.L.Long

FH leiðir 2-1 í einvíginu gegn Haukum í undanúrslitum Íslandsmótsins eftir 27-23 sigur í þriðja leik liðanna í Kaplakrika í gærkvöldi. Liðin mætast í fjórða sinn á Ásvöllum næstkomandi föstudagskvöld.

Rætt var um leikinn í uppgjörsþætti Handkastsins í gærkvöldi og þar sagði Sigurjón Friðbjörn Björnsson einn af gestum þáttarins að lykilmóment í leiknum hafi verið þegar Ólafur Ægir Ólafsson fékk rauða spjaldið í stöðunni 20-18 fyrir FH og rúmlega 10 mínútur voru eftir af leiknum.

,,Það er lykilmóment í þessum leik þegar Ólafur Ægir fær rautt spjald í sókn. Þetta er lykilmóment í leiknum og þarna klárar FH leikinn," sagði Sigurjón sem segir það vera algjöra óþarfi að setja Ólaf Ægi í leikbann fyrir brotið.

FH breytti stöðunni í 23-19 í kjölfarið og litu ekki til baka eftir það.

Hægt er að sjá brotið hjá Ólafi Ægir hér:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top