Haukar taka á móti FH með bakið upp við vegg í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins á Ásvöllum í kvöld klukkan 19:00 1-2 undir í einvíginu og mega alls ekki misstíga sig í leiknum í kvöld. Valur hefur nú þegar tryggt sér sæti í úrslitum eftir 3-0 sigur í einvíginu gegn KA. Í uppgjörsþætti Handkastsins eftir síðustu umferð spurði Stymmi klippari gesti þáttarins, Gunnar Val Arason og Sigurjón Friðbjörn Björnsson hvort liðið þeir haldi að Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals vilji fá í úrslitaeinvíginu. Stymmi bætti við að Valur hefur tapað öllum leikjunum gegn Haukum í vetur en liðið tapaði í vítakastkeppni gegn Haukum í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins. ,,Ég ætla segja að hann vilji frekar fá FH bara útaf þyngdinni á Haukavörninni, hún er virkilega massív. Ég held að FH vörnin henti Val betur í einvígi," svaraði Gunnar Valur áður en Sigurjón Friðbjörn tók af honum orðið. ,,Síðan ertu með einn besta leikmann FH á leiðinni út í atvinnumennsku og hann hefur verið ískaldur í tveimur leikjum gegn Haukum og í rauninni bara verið góður í tveimur hálfleikjum af sex. Ef ég væri Valsari þá myndi ég frekar vilja fá FH. En svo er þetta bara Haukar eða FH, þetta er kók eða Pepsi," sagði Sigurjón Friðbjörn og á þá við, Garðar Inga Sindrason sem gengur í raðir Gummersbach í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.