Hefur pælt í því að fá Aron inn í landsliðsþjálfarateymið
J.L.Long

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins settist niður með Arnari Daða Arnarssyni eftir að hafa skrifað undir sex ára samning við HSÍ á dögunum.

Í viðtalinu var Snorri Steinn spurður út í Aron Pálmarsson sem nú er kominn inn í þjálfarateymi FH í Olís-deild karla.

,,Væri einhver draumur að fá Aron Pálmarsson inn í þjálfarateymi landsliðsins?"

,,Ég hef alveg pælt í því og hugsa oft um þetta og tala stundum við hann. Ég er í ágætum samskiptum við hann en ég held að það sé líka hollt fyrir hann, okkur og liðið að vera aðeins án hans. En ef Aron Pálmarsson hellir sér út í þjálfun þá held ég að þú sjáir hann alveg aftur á stórmóti."

Viðtalið við Snorra Stein er hægt að hlusta á hér að neðan og í öllum hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top