
KA féll úr leik í Íslandsmótinu eftir 0-3 tap gegn Val í undanúrslitum úrslitakeppninnar á mánudagskvöldið. Morten Boe Linder gekk í raðir KA fyrir tímabilið og setti heldur betur svip sinn á lið KA í vetur með skemmtilegum tilþrifum í hægri skyttunni. Hann varð hinsvegar fyrir því óláni að meiðast eftir áramót og gat lítið spilað seinni hluta mótsins. Morten Boe setti færslu inn á Instagram síðu sína í vikunni þar sem hann fór yfir sitt fyrsta tímabil með KA. ,,Frábært tímabil að baki og ég er ótrúlega heppinn að fá að vera hluti af þessu liði og þessum klúbbi! Fyrir tímabilið var okkur spáð í fallbaráttu, en við endum í Final4 í bikarnum og í undanúrslitum í úrslitakeppninni. Besta niðurstaða félagsins í úrslitakeppni síðan 2012 (ef ég hef heyrt rétt). Hjartans þakkir til frábæru stuðningsmannanna okkar sem skapa töfra leik eftir leik í KA‑Heimilið! Nú hefst vinnan fyrir næsta tímabil og ný skref fyrir KA," skrifaði Morten Boe á Instagram síðu sinni en hann gerði tveggja ára samning við KA síðasta sumar. Norðmaðurinn var þriðji markahæsti leikmaður KA á tímabilinu á eftir Bjarna Ófeig Valdimarssyni og Giorgi með 94 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.