Norðurlöndin: Ribe-Esbjerg með sigur í Íslendingaslag
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en í Danmörk var boðið upp á Íslendingaslag á meðan úrslitakeppnin fór af stað í Noregi.

Ringsted tók á móti Ribe-Esbjerg í fall umspilinu í Danmörku en þar reyndust gestirnir sterkari og unnu flottan sigur, 28-35. Elvar Ásgeirsson hélt áfram að spila glimrandi vel fyrir Ribe-Esbjerg en hann skoraði sex mörk úr sjö skotum og gaf fimm stoðsendingar en hann var besti maður vallarins samkvæmt einkunnagjöf dönsku deildarinnar. Hjá heimamönnum voru Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson báðir fjarverandi að þessu sinni.

Í Svíþjóð hélt úrslitakeppnin áfram kvenna megin en Skara tryggði sig áfram í undanúrslitin eftir sigur á VästeråsIrsta í þriðja leik liðanna, 29-19. Einvígið endaði því 3-0 fyrir Skara sem átti í litlum vandræðum með Västerås. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk úr fimm skotum og gaf þrjár stoðsendingar í kvöld.

Kolstad hóf úrslitakeppnina í Noregi með látum en þeir unnu gríðarlega öruggan heimasigur á Nærbø, 35-26. Benedikt Gunnar Óskarsson var frábær í kvöld en hann skoraði tíu mörk úr ellefu skotum þar af fjögur mörk úr vítum og gaf einnig fjórar stoðsendingar á meðan Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk úr átta skotum og gaf tvær stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson kom ekki við sögu að þessu sinni.

Úrslit kvöldsins:

Ringsted 28-35 Ribe-Esbjerg

Skara 29-19 VästeråsIrsta

Kolstad 35-26 Nærbø

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top