Norðurlöndin: Íslendingaliðin áfram í Svíþjóð
Raggi Óla

Fimm Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld í bæði Svíþjóð og Noregi en kvennalið Sävehof og karlalið Kristianstad eru bæði komin áfram í undanúrslitin í úrslitakeppninni eftir sigur í kvöld.

En við hefjum yfirferðina í Noregi þar sem deildarmeistarar Elverum unnu torsóttan sigur á Fjellhammer í fyrsta leik sínum í úrslitakeppninni, 30-26. Tryggvi Þórisson skoraði ekki mark í kvöld en fékk eina brottvísun.

Í Svíþjóð hélt úrslitakeppnin áfram en karla megin eru Sävehof á leið í oddaleik í átta liða úrslitunum eftir tap í framlengdum leik gegn Hammarby á heimavelli, 36-39. Birgir Steinn Jónsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir heimamenn sem fara nú í oddaleik í Stokkhólmi næstkomandi mánudagskvöld.

Kristianstad eru komnir áfram í undanúrslitin eftir sigur á Karlskrona á útivelli í miklum markaleik, 35-41 þar sem Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk úr fimm skotum, gaf þrjár stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki á meðan Einar Bragi Aðalsteinsson átti frábæran leik fyrir gestina og skoraði tíu mörk úr þrettán skotum og gaf fimm stoðsendingar fyrir liðið.

Kvenna megin eru Sävehof komnar í undanúrslit eftir sigur á Skuru í þriðja sinn en lokatölur í kvöld urðu 35-29. Elín Klara Þorkelsdóttir átti fínan leik fyrir heimakonur en hún skoraði sex mörk úr átta skotum þar af fimm úr vítum og gaf þrjár stoðsendingar að auki.

Úrslit kvöldsins:

Elverum 30-26 Fjellhammer

Sävehof 36-39 Hammarby

Karlskrona 35-41 Kristianstad

Sävehof 35-29 Skuru

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top