Daníel Freyr Andrésson reyndist hetja FH-inga sem eru komnir í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á grönnum sínum í Haukum 35-36 á Ásvöllum í kvöld í fjórða leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu. FH vann einvígið 3-1 og mætir Val í úrslitaeinvíginu. Daníel Freyr varði í tvígang dauðafæri frá Haukum á lokasekúndum leiksins en Haukar fengu tækifæri til að koma leiknum í framlengingu en Daníel sá við þeim. Skarphéðinn Ívar Einarsson sem skoraði 13 mörk fyrir Hauka klikkaði skoti af sex metrunum en Jón Ómar Gíslason náði frákastinu en lét Daníel verja frá sér aftur og í kjölfarið rann leikurinn út í sandinn. Össur Haraldsson var næst markahæstur í liði Hauka með átta mörk. Heimamenn byrjuðu af krafti í leiknum og komust í 6-3 en í stöðunni 7-6 sögðu FH-ingar hingað og ekki lengra og komust Haukar aldrei yfir í leiknum eftir það. Í stöðunni 10-10 kom hræðilegur kafli hjá Haukum og nýttu FH-ingar sér það vel og breyttu stöðunni í 11-17. Staðan í hálfleik var 14-19 FH í vil. FH var með forskot allan seinni hálfleikinn en Haukar náðu á einhvern ótrúlegan hátt að koma sér í þá stöðu að geta jafnað leikinn í lokasókninni en staðan var 31-34 FH í vil þegar lítið var eftir. Lokatölur 35-36. Markaskorunin dreifðist vel hjá FH í leiknum. Ómar Darri Sigurgeirsson og Birkir Benediktsson voru markahæstir hjá FH með fimm mörk hvor og Einar Örn Sindrason, Kristófer Máni Jónasson, Jón Bjarni Ólafsson og Birgir Már Birgisson skoruðu fjögur. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.