

Haukar tilkynntu á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld rétt eftir að hafa farið í sumarfrí eftir tap gegn FH í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins að liðið hafi samið við Hjört Inga Halldórsson. Hjörtur Ingi gengur í raðir Hauka eftir langa veru í Kórnum hjá HK en hann gerir þriggja ára samning við Hauka þar sem hann er uppalinn. Hjörtur Ingi sem verður 27 ára í desember er uppalinn á Ásvöllum og hefur leikið með HK frá því að hann yfirgaf Hauka sumarið 2020 en hann var hluti af meistaraflokksliði Hauka sem varð deildarmeistari 2019. ,,Það er gleðiefni fyrir Hauka að fá uppalda leikmenn aftur til liðs við félagið og mun koma Hjartar Inga gera gott Haukalið enn betra og hjálpa liðinu að keppast um alla þá titla sem í boði eru næstu árin," segir í tilkynningunni frá Haukum. Hjörtur Ingi skoraði 56 mörk fyrir HK á tímabilinu en hann var fimmti markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu. Hjörtur Ingi er þriðji leikmaður HK sem yfirgefur liðið eftir tímabilið. Við undirskrfitina hafði Hjörtur Ingi þetta að segja: „Ég er ótrúlega spenntur að snúa aftur í uppeldisfélagið mitt Hauka og hlakka til að gefa allt í komandi verkefni með liðinu“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.