Katrín Hekla framlengir við HK

Handknattleiksdeild HK og Katrín Hekla Magnúsdóttir hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning.

Katrín Hekla er vinstri hornamaður, fædd árið 2005, uppalin hjá HK og spilaði í öllum yngri flokkum félagsins. Hún hefur verið partur af meistaraflokk félagsins síðastliðin 5 ár. Síðastliðin þrjú ár hefur hún verið fastamanneskja í liði HK sem mun spila í Olís-deildinni á komandi tímabili.

Á leiktímabilinu núna sem leið skoraði hún 31 mark í 20 leikjum í Grill 66 deildinni.

"Þrátt fyrir að vera einungis tvítug er Katrín Hekla ein af reynslumeiri leikmönnum HK sem Handknattleiksdeild HK er mjög ánægð með að hafa áfram í herbúðum sínum" segir í tilkynningu frá HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top