Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Grótta - Stjarnan (Sunnudagur 16:00) / Sigurvegari: Stjarnan Frábær sigur hjá Gróttu í Garðabænum á fimmtudaginn. Stjarnan spilaði frábæra vörn en alltof margir lykilmenn hjá þeim áttu lélegan dag sóknarlega. Ég sé ekki þessa leikmenn eiga annan svona lélegan leik og held því að Stjarnan fari á Seltjarnarnesi og vinni Gróttu og jafni metin 1-1. Markverðir Gróttu þurfa að eiga betri leik en á fimmtudaginn ef það er hægt að fara fram á það til að Grótta fái eitthvað út úr þessum leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.