
Fyrri leikirnir í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna fóru fram um helgina og ljóst er að spennan verður gríðarleg í seinni leikjunum. FTC og Metz skildu jöfn í "leik helgarinnar", Györi er komið með annan fótinn í FINAL4 í Búdapest eftir stórsigur gegn Odense, Esbjerg fer með naumt forskot inn í seinni leikinn gegn CSM Búkaresti og Brest slapp með skrekkinn í Rúmeníu gegn Gloria Bistrita. FTC - Metz 31-31 (14-15) Odense - Györ 28-36 (15-16) Esbjerg - CSM Búkaresti 26-25 (14-13) Gloria Bistrita - Brest 35-36 (17-19)
Metz byrjaði betur og komst snemma þremur mörkum yfir, þar sem Sarah Bouktit fór fyrir sóknarleik franska liðsins. FTC átti í vandræðum með að finna taktinn og skoraði sitt fyrsta mark ekki fyrr en á sjöttu mínútu.
Þrátt fyrir það unnu heimakonur sig smám saman inn í leikinn og Katrin Klujber kom FTC yfir í fyrsta sinn á 18. mínútu. Metz hélt þó frumkvæðinu út fyrri hálfleikinn og leiddi 15:14 í hálfleik.
Í seinni hálfleik var það innkoma Blönku Böde-Bíró sem breytti miklu fyrir FTC. Hún varði frábærlega og hjálpaði liðinu að komast tveimur mörkum yfir, 22:20. Metz svaraði þó með sterkum kafla, Johanna Bundsen lokaði markinu á mikilvægum augnablikum og Suzanne Wajoka kom franska liðinu aftur yfir.
Það stefndi í útisigur Metz, en Emily Vogel jafnaði fyrir FTC aðeins fimm sekúndum fyrir leikslok og tryggði liðinu 31:31 jafntefli. Vogel skoraði sjö mörk fyrir FTC, á meðan Bouktit var markahæst hjá Metz með níu.
Györi sýndi enn á ný hvers vegna liðið er ríkjandi Evrópumeistari þegar það vann sannfærandi útisigur gegn Odense. Danska liðið byrjaði leikinn betur og stjórnaði fyrstu tuttugu mínútunum. Þær komust ítrekað tveimur mörkum yfir og leikur liðsins leit vel út, en Györ svaraði með því að herða varnarleikinn og ná tökum á leiknum undir lok fyrri hálfleiks og fór með eins marks forystu í hálfleik 16-15.
Í seinni hálfleik small leikur Györ fullkomlega. Sóknarleikur Odense hikstaði, mistökin urðu fleiri og fleiri og Györ refsaði af mikilli grimmd.
Á skömmum tíma breyttist staðan úr jöfnum leik í sex marka forskot, 28:22, og þó Odense næði að minnka muninn niður í þrjú mörk um tíma var það aðeins skammgóður vermir. Á síðustu fimm mínútunum skoraði danska liðið aðeins eitt mark á meðan Györ skoraði sex og breytti stöðunni í átta marka sigur.
Dione Housheer skoraði tíu mörk fyrir Györ og Bruna de Paula bætti við sex. Hjá Odense var Viola Leuchter markahæst með fimm mörk.
Esbjerg vann nauman eins marks sigur gegn CSM Búkaresti í leik sem var jafn frá upphafi til enda.
CSM byrjaði leikinn betur og varnarleikur rúmenska liðsins skapaði Esbjerg töluverð vandræði framan af. Tomas Axnér, þjálfari danska liðsins, reyndi ýmsar útfærslur í sóknarleiknum, meðal annars sjö á sex, og Henny Reistad var eins og oft áður lykillinn að því að Esbjerg héldi sér inni í leiknum.
Undir lok fyrri hálfleiks náði Esbjerg loks að snúa stöðunni sér í hag og fór með 14:13 forystu þegar flautað var til hálfleiks eftir að CSM hafði ekki náð að skora í fimm mínútur.
Í seinni hálfleik virtist danska liðið ætla að slíta sig frá andstæðingnum. Katarina Filter steig upp í markinu með 50 prósenta markvörslu og hjálpaði Esbjerg að komast í 21:17.
CSM gafst þó ekki upp. Bojana Popovic breytti varnarleiknum og Evelina Eriksson kom sterk inn í markið. Rúmenska liðið vann sig aftur inn í leikinn og Trine Østergaard jafnaði í 25:25 þegar tvær mínútur voru eftir.
Þá virtist allt geta gerst, en CSM nýtti ekki síðustu sóknir sínar og Esbjerg hélt út. Henny Reistad var markahæst með níu mörk og er nú komin með 125 mörk í keppninni á tímabilinu, langflest allra leikmanna.
Það var mikil spenna í leik þessar liða á heimavelli Gloria Bistria í Rúmeníu.
Bistrita byrjaði af krafti og var sterkari aðilinn fyrsta kortérið. Danila So Delgado fór fyrir heimakonum og hjálpaði þeim að halda frumkvæðinu, en þrátt fyrir það tókst rúmenska liðinu aldrei að komast meira en tveimur mörkum yfir.
Brest jafnaði sig smám saman og komst yfir um miðjan fyrri hálfleik. Clarisse Mairot og Pauline Coatanea leiddu sóknarleik franska liðsins sem náði tveggja marka forskoti en staðan var 19:17 í hálfleik.
Franska liðið virtist síðan ætla að stinga af þegar það komst í 23:18 snemma í seinni hálfleik. Þá tók rúmenska liðið hins vegar við sér, studdar af heimafólki, og jafnaði leikinn í 26:26 tíu mínútum síðar.
Spennan var mikil á lokakaflanum og Bistrita reyndi meðal annars að spila sjö á sex til að jafna metin. Brest hélt þó haus og náði að verja eins marks forskot sitt og hafði að lokum sigur 35-36.
Heimaliðið fékk meira að segja tækifæri til að jafna undir lokin þegar Paula Arcos stal boltanum og reyndi skot í autt mark af löngu færi, en skotið fór forgörðum.
Danila So Delgado skoraði átta mörk fyrir Bistrita og er komin með 112 mörk í keppninni á tímabilinu, á meðan Onacia Ondono var markahæst hjá Brest með sjö mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.