Léku ekki síðustu leikina vegna meiðsla
Baldur Þorgilsson

Hvorki Ísak Gústafsson né Guðmundur Bragi Ástþórsson leikmenn TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni léku með liðinu í síðustu tveimur leikjum tímabilsins en tímabili liðsins er lokið.

Báðir voru þeir að glíma við meiðsli fyrir síðustu leiki tímabilsins og þar sem liðið hafði tryggt sér sæti í deildinni fyrir síðustu leikina var engin áhætta tekin og þeir hvíldir.

,,Ég er búinn að vera að glíma við meiðsli í hásinunum og þess vegna hef ég ekki getað spilað að undanförnu. Eftir að við tryggðum sæti okkar í deildinni var ákveðið að ég og Gummi (Guðmundur Bragi) yrðum ekki með," sagði Ísak Gústafsson í samtali við Handkastið en hann sagði að Guðmundur Bragi hafi snúið sig á ökkla í leiknum gegn Nordsjælland á dögunum.

Ísak gekk í raðir TMS Ringsted fyrir tímabilið eftir dvöl sína hjá Val en hann er uppalinn á Selfossi. Ísak lék með öllum yngri landsliðum Íslands á sínum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top