Tryggvi Garðar Jónsson sem varð Íslands- og bikarmeistari með Fram á síðustu leiktíð gekk í raðir Alpla Hard í Austurríki fyrir tímabilið. Hann er að klára sitt fyrsta tímabil í atvinnumennsku en hann gerði eins árs samning við austurríska félagið sem Hannes Jón Jónsson þjálfar. Tryggvi Garðar gerði eins árs samning við Alpla Hard og rennur samningur hans því út eftir tímabilið. Alpla Hard endaði í 2.sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar á eftir Voslauer sem vann deildina með 29 stig. Framundan er úrslitakeppnin og þá er liðið í undanúrslitum í bikarnum þar sem liðið tæri Hanball Tirol um næstu helgi. Tryggvi Garðar Jónsson sagði í samtali við Handkastið að hann stefni á að leika áfram erlendis á næstu leiktíð. Það væri þó óljóst á þessari stundu hvað tæki við hjá sér og hann væri einfaldlega að skoða sín mál. Tryggvi Garðar hefur verið í varnarhlutverki hjá Alpla Hard á þessu tímabili en á yngri árum þótti hann mikil skytta en hann er uppalinn hjá Val en lék með Fram áður en hann hélt út í atvinnumennsku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.