Sjáðu krúsídúllu mark Kristófers Mána
J.L.Long

Kristófer Máni Jónasson og liðsfélagar hans í FH eru komnir í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn en þar mætir Kristófer Máni hans fyrrum liðsfélögum í Val.

Kristófer hóf leiktíðina í Val en skipti yfir í upphafi tímabils eftir að Arnór Snær Óskarsson gekk í raðir Vals.

FH sló út Hauka í undanúrslitum úrslitakeppninnar í síðustu viku eftir eins marks sigur á Ásvöllum 36-35 í fjórða leik liðanna. Kristófer Máni sem lék lengi vel með Haukum áður en hann gekk í raðir Vals skoraði eitt krúsídúllu mark í sigri FH gegn Haukum í síðustu viku.

Farið var yfir markið í Handboltahöllinni sem sýnd er í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top