

FH tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu gegn Val eftir 3-1 sigur í undanúrslitunum gegn grönnum sínum í Haukum. Farið var yfir einvígi FH og Hauka í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans á mánudagskvöldið. ,,Það hefur mikið verið talað um það hvaða lið er með mestu breiddina. Það var talað um það fyrir þetta einvígi að Haukar væru með meiri breidd en FH. En það hvernig FH róterar liðinu rosalega mikið. Það eru 10-11 leikmenn búnir að skora fyrir liðið í upphafi seinni hálfleiks og þú ert að fá framlög frá nánast hverjum einasta leikmanni FH, ekki alltaf sömu í hverjum leik," sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar. Rakel Dögg Bragadóttir tók undir orð Harðar. ,,Það er hrikalega dýrmætt og sérstaklega í seríu eins og þessari. Eftir tíu mínútur eru þrír leikmenn staðnir upp á bekknum og farnir að hita upp og vita að þeir séu að koma inná. Það virðist vera að þetta sé alveg skýrt, bæði hjá þeim sem byrja inná og þeim sem byrja á bekknum. Þetta er lið og þeir ætla að spila á breiddinni og leikmenn koma inná með sjálfstraust. Einar Örn kom með góð mörk og Birkir Benediktsson steig svakalega vel upp í seinni hálfleik. Við getum horft á aðal leikmennina, Garðar Inga og Ómar Darra en það eru framlög frá miklu fleiri leikmönnum. FH hafði það framyfir Hauka í þessu einvígi." Fyrsti leikur Vals og FH í úrslitaeinvíginu er í kvöld klukkan 19:30 í Valsheimilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.