Valur verður án Dags Árna gegn FH
Sævar Jónasson

Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals er áfram að glíma við meiðsli sem hefur plagað hann allt tímabilið. Hann verður ekki með liðinu í fyrsta leik Vals og FH í úrslitum Íslandsmótsins þegar liðin mætast í Valsheimilinu annað kvöld.

Fyrsti leikur Vals og FH hefst klukkan 19:30 annað kvöld og verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

,,Dagur Árni er ekki leikfær og verður ekki með en aðrir eru eins og staðan er í dag klárir og spenntir fyrir verkefninu," sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals í viðtali við Handkastið í gær þar sem HSÍ og Olís héldu blaðamannafund í aðdraganda úrslitaeinvígisins.

Dagur Árni kom inn í leikmannahóp Vals í fyrsta leik af þremur í einvíginu gegn KA í undanúrslitunum en var síðan ekki með liðinu í seinni tveimur leikjunum. Ljóst er að hann hefur ekki enn jafnað sig á meiðslunum.

Viðtalið við Ágúst má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top