

Línumaðurinn, Þórður Tandri Ágústsson hefur framlengt samningi sínum við Þór. Þórður Tandri semur við Þór til ársins 2028. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gærkvöldi. Þórður Tandri gekk í raðir Þórs frá Stjörnunni fyrir tímabilið 2024/2025 og lék með liðinu í Grill66-deildinni það tímabil. Hann lék síðan með liðinu í Olís-deildinni á þessu ári er liðið hélt sæti sínu í deildinni og leikur í deild þeirra bestu aftur á næsta tímabili. ,,Þetta eru miklar gleðifréttir en Þórður er uppalinn í Þorpinu og hefur verið stór hluti af liðinu eftir við fengum hann heim aftur," segir í tilkynningunni frá Þór en Þórður Tandri skoraði 70 mörk í 21 leik í Olís-deildinni í vetur. Þórsarar hafa verið virkir á leikmannamarkaðnum síðustu daga en þrír danskir leikmenn hafa samið við liðið og eru fleiri leikmenn væntanlegir samkvæmt heimildum Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.