
Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar var á dögunum rekinn eftir eitt ár í starfi sem aðalþjálfari liðsins. Stefán var þar á undan aðstoðarþjálfari liðsins í þrjú ár þegar liðið lék undir stjórn Gunnars Magnússonar. Í uppgjörsþætti Handkastsins á dögunum var til umræðu þjálfarabreytingarnar í Breiðholtinu þar sem sagan segir að leikmenn kvennaliðs ÍR hafi viljað þjálfarabreytingar og í kjölfarið hafi Grétar Áki Andersen þjálfari liðsins stigið til hliðar. ,,Var ekki nákvæmlega það sama að gerast í Mosfellsbænum hjá karlaliði Aftureldingar fyrir tveimur vikum síðan?” spurði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins þá Stymma klippara og Kristin Björgúlfsson sem voru með honum í Rapyd-stúdíóinu. ,,Við höfum frétt af því milli þátta, þar hef ég heyrt að Árni Bragi Eyjólfsson hafi verið drifkrafturinn í því að Stefán Árnason yrði ekki áfram. Þetta hafi komið meira úr eldri kjarna hópsins heldur en yngri," sagði Stymmi klippari. ,,Ég hef líka heyrt þetta og ef satt reynist þá velti maður fyrir sér með stjórn Aftureldingar, hvort er Árni Bragi framtíðin innan Aftureldingar eða ungu strákarnir sem er verið að reyna bæta?” velti Kristinn Björgúlfsson fyrir sér og hélt áfram: ,,Hefði stjórn Aftureldingar ekki átt að segja við Árna Braga, þú átt 1-2 ár eftir af ferlinum síðan eru aðrir leikmenn að koma. Þú mátt ráða því hvort þú verður áfram hérna eða ekki.” ,,Ég trúi ekki að einn leikmaður sem er að verða fertugur hafi áhrif á það hvort þjálfarinn verði látinn fara eða ekki. En þetta er athyglisvert mál hinsvegar,” bætti Arnar Daði þáttastjórnandi Handkastsins við. Afturelding hefur ekki enn tilkynnt um nýjan þjálfara sem tekur við af Stefáni Árnasyni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.