Efnilegur örvhentur hornamaður framlengir við Hauka

Egill Jónsson hefur framlengt samning sinn við Hauka til næstu ára. Egill sem er uppalinn Haukamaður hefur verið viðloðinn meistaraflokk Hauka undanfarin ár ásamt því að vera lykilmaður í U-liði og 3. fl félagsins.

Egill verður 19 ára í sumar en hann getur bæði leikið sem hornamaður og skytta hægra megin enda örvhentur. Einnig hefur Egill verið viðloðandi yngri landslið Íslands en síðasta sumar var hann hluti af U-19 ára landsliðinu sem hafnaði í öðru sæti á Opna Evrópumótinu.

"Það verður gaman að fylgjast áfam með Agli á parketinu á Ásvöllum og sjá hann halda áfram að þroskast og bæta sig sem handboltaleikmaður á komandi tímabili" segir í tilkynningu frá Haukum nú í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top