Handboltahjónin Einar Rafn Eiðsson og Unnur Ómarsdóttir voru kvödd með þökkum á lokahófi KA og KA/Þórs í gærkvöldi en eftir fimm ára veru fyrir norðan hafa þau ákveðið að flytja til Reykjavíkur. Unnur sem er uppalin hjá KA/Þór lék í heildina 150 leiki fyrir liðið og varð bikarmeistari er hún sneri aftur í raðir KA/Þórs veturinn 2021-2022. Einnig hefur hún spilað með Gróttu og Fram á sínum ferli og varð meðal annars Íslandsmeistari með Gróttu. Einar Rafn er fæddur og uppalinn Hafnfirðingur en hefur alltaf haft gríðarlega sterkar taugar til KA vegna ættartengsla á Akureyri og lék hann í heildina 116 leiki fyrir KA. Varð hann meðal annars tvívegis markakóngur Olísdeildarinnar í gula og bláa búningnum. Einnig hefur Einar Rafn spilað með Haukum, Fram, FH og í Noregi á sínum ferli. "Við þökkum þeim heiðurshjónum kærlega fyrir frábæra samveru undanfarin ár og bjóðum þau ávallt velkomin aftur norður" segir í fréttatilkynningu frá KA og KA/Þór.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.