Hver er besti leikmaður Vals og FH?
J.L.Long

Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn hefst í kvöld í Valsheimilinu þegar Valur og FH mætast klukkan 19:30. Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Um er að ræða tvö bestu lið landsins sem enduðu í tveimur efstu sætunum í Olís-deildinni. Ágúst Jóhannsson og Sigursteinn Arndal þjálfarar liðanna voru spurðir að því í viðtölum við Handkastið á blaðamannafundi sem HSÍ hélt í aðdraganda einvígsins hverjir væru bestu leikmenn andstæðinga.

Byrjum á svari Sigursteins Arndals:

,,Mér finnst ógeðslega gaman að fylgjast með þessum ungu strákum og ég verð að viðurkenna það að ég vissi að hann væri góður, hann Gunni (Gunnar Róbertsson) en mér finnst hann alltaf halda áfram að bæta sig og hann er með fullt af hlutum. Það er ekki bara það að hann sé öflugur í sókn, mér finnst hann góður í vörn líka og hefur auga fyrir hlutum þar. Mér finnst hann geggjaður.”

Ágúst Þór Jóhannsson telur Garðar Inga Sindrason vera þann besta í FH:

,,Garðar Sindrason er gríðarlega öflugur leikmaður og hefur verið að spila vel. Ég held að hann sé besti leikmaðurinn þeirra enda er hann á leiðinni til Gummersbach.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top