Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins tilkynnir í hádeginu á morgun þá leikmenn sem ferðast til Egyptalands og taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Egyptum í maí. Hópurinn verður tilkynntur klukkan 12:00 á morgun en Snorri Steinn hefur ýjað að því að töluverðar breytingar verði á landsliðshópnum frá síðasta verkefni er Ísland mætti Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi. ,,Horfi á þetta verkefni til að prófa hluti, bæði taktískt og til að prófa nýja leikmenn," sagði Snorri Steinn á blaðamannafundi sem HSÍ hélt í aðdraganda verkefrnsins gegn Svíþjóð í mars. Leikir Íslands gegn Eygptalandi fara fram miðvikudaginn 13.maí og föstudaginn 15.maí. Þjóðirnar mætast síðan í Laugardalshöllinni í tveimur vináttulandsleikjum í janúar í aðdraganda heimsmeistaramótsins á næsta ári. Rætt var um komandi landsliðsval í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.