
Sigursteinn Arndal var svekktur með að tapa fyrsta leik í úrslitaeinvíginu við Val á Hlíðarenda í kvöld en viðurkenni að Valsmenn hefðu verið betri en FH í kvöld og átt sigurinn skilið. Steini viðurkenndi að það væri margt sem FH gæti lagað um helgina fyrir næsta leik. ,,Við vorum ekki nógu sterkri í kvöld og gáfum eftir á lykilmómentum í kvöld og þess vegna unnu Valur verðskuldað í kvöld." Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH fékk að líta rauða spjaldið í kvöld og var Sigursteinn ekki sammála þeim dóm. ,,Mér finnst ótrúlegt að dómararnir hafi notað 3-4 mínútur til þess að tala sig inn á þennan dóm í úrslitaleik, ég var að sjá þetta í sjónvarpinu og ég fæ þetta aldrei til að vera rautt spjald." Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.