Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins FH - Valur (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: FH FH gerði of mikið af klaufalegum misstökum sem Valur refsaði fyrir eins og þeim einum er lagið í leik nr. 1 hjá þessum liðum. FH þarf að fækka þeim til þess að eiga séns gegn Val. Bæði lið eiga inni markvörslu svo ég reikna með færri mörkum í þessum leik en fyrsta leik liðanna. FH verði dyggilega studdir áfram af stuðningsmönnum sínum á heimavelli og ná að jafna einvígið í 1-1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.